Íslenski kúrinn

Jæja, þá er komið að því. Á morgun byrja ég fyrir alvöru í megrunarkúr sem ég hlýt að kalla íslenska kúrinn því hann felst í því að borða bara íslenskan mat. Íslenski kúrinn byggist á því að:

a)      Ég hitti meltingarlækni sem sagði mér að íslenskur matur væri sá hollasti í heimi.

b)      Aðeins helmingur þeirrar fæðu sem neytt er á Íslandi er framleidd hér. Þ.a. ef maður borðar bara það íslenska borðar maður helmingi minna. Með því að auka svo neyslu á íslenska matnum um 50% endar maður í 75% af fyrri neyslu.

Sjáum hvað setur. Til að veita mér aðald og í þágu vísinda ætla ég að birta þyngdarmælingu á mánudögum næsta mánuðinn.

Byrjunarstaða: 108 kg.