Staðfest að ríkisstjórnin er að ræða hækkun virðisaukaskatts á matvæli í fullri alvöru.

Í dag fékk ég staðfest eftir mjög áreiðanlegum heimildum að það sé raunverulega til umræðu í fullri alvöru innan ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvæli. Það eru skelfilegar fréttir.

Almennur virðisaukaskattur er nú þegar sá hæsti í heiminum á Íslandi og skattar á almenning eru fyrir löngu komnir yfir þolmörk heimilanna.

Það er löngu sannað að skattahækkanir á matvæli koma verst við þá sem lægst hafa launin og þegar virðisaukaskattur á matvæli var lækkaður á sínum tíma skipti það mjög miklu máli fyrir fjárhag heimilanna.

Að hækka virðisaukaskatt á matvæli í þeirri stöðu sem nú ríkir er hrein aðför að láglaunafólki. Þetta er rangt og þetta verður að stöðva.

Ef af slíkum skattahækkunum verður er algerlega ljóst að fyrsta verk Framsóknar í ríkisstjórn verður að afnema þær.

Stjórnin hefur sóað dýrmætum tíma síðustu tvö ár og aukið á vandann frekar en hitt með skattahækkunum og framtaksleysi. Því miður hafa gríðarleg tækifæri glatast á þessum tíma og vandinn hefur orðið meiri og meiri.

Haldi þetta áfram verður enn erfiðara að snúa við blaðinu og rétta við ríkisfjármálin og byggja upp velferðarsamfélagið á ný. Meiri skattahækkanir eru ekki lausn heldur vandamál.